fbpx

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Formaður LEB í Mannlega þættinum á Rás 1

22 okt 2020 @ 11:00 - 12:00

Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB situr fyrir svörum sem „sérfræðingur vikunnar“ í Mannlega þættinum á Rás 1 um ýmis málefni eldra fólks.

Fastur liður á fimmtudögum í Mannlega þættinum á Rás 1 er „sérfræðingur vikunnar“.

Fimmtudaginn 22. október verður sérfræðingurinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB – Landssambands eldri borgara. Hlustendur geta beint spurningum til hennar með því að senda þær á netfang þáttarins, mannlegi@ruv.is

Í þættinum verður rætt við Þórunni um málefni eldri borgara, hvað brennur á þeim, hvaða mál eru efst á baugi hjá skjólstæðingum sambandsins og yfirleitt hjá eldri borgurum.

Við hvetjum fólk til að senda þættinum spurningar sem þau vilja að Þórunn svari um hvers kyns málefni eldri borgara. Netfangið er eins og áður segir mannlegi@ruv.is.

Mannlegi þátturinn er á dagskrá Rásar 1 kl. 11.00 – 12.00.

Details

Date:
22 okt 2020
Time:
11:00 - 12:00